Umhverfis jörðina á áttatíu dögum

Umhverfis jörðina á áttatíu dögum

Phileas Fogg er Englendingur með mjög nákvæman persónuleika. Hann borðar morgunmat kl. 8:23, rakar sig kl. 9:37 og leggur af stað í Re-form klúbbinn kl. 11:30. Hann les, borðar og ferðast ekki. Einn dag, eftir að hafa lent í rifrildi vegna greinar á vegum the Daily Telegraph, veðjar hann við vini síni að hann geti ferðast í kringum allan heiminn á 80 dögum. Hann fer af stað, einungis í för með franska aðstoðarmanni sínum Passe-partout. Klukkan er 8:45 á miðvikudegi þann 2. október 1872 og hann ætlar sér að verða komin til baka fyrir 21. Desember. Umhverfis jörðina á 80 dögum er eitt frægasta verk Jules Verne. Kvikmynd var gerð eftir bókinni árið 2004 með Jackie Chan og Steve Coogan í aðalhlutverkum.

Jules Verne (1828-1905) var franskur skáldsagnahöfundur sem skrifaði mest af ævintýra-skáldsögum, innblásnum af framförum vísinda á 19. öld. Með hjálp ritstjórans Pierre-Jules Hetzel skrifaði hann seríu af bókum kallaðar "Ótrúlegu ferðirnar", sem innihalda "Ferðlag til miðju jarðar" (1864), "Tuttugu þúsund mílur neðan sjávar" (1870) og "Umhverfis jörðina á 80 dögum" (1873). Víða er Verne mjög svo vinsæll á meðal bæði barna og fullorðinna og er hann einn mest þýddi höfundur allra tíma, sem heldur áfram að vekja andagift á meðal fólks um allan heim.

Détails du livre

Commentaires

Il n'y pas encore de commentaire pour ce livre.

Vous aimerez aussi

Livre audio (Fichier MP3)

Livre audio (Fichier MP3)

Livre audio (Fichier MP3)